3.10.2008 | 08:53
Á 6 vikum hækkaði leigan um 30.000 á þessum bæ.
Útreiknuð leiga áður en ég flutti: 85.000
Leigan hjá mér þegar ég flutti í ágúst; 102.000
Leigan hjá mér fyrir september; 113.750
Leigan hjá mér fyrir október; 133.250
Og þá spyr ég..
Ef að ég, venjulegur ungur íslenskur námsmaður get ekki gert áætlun um mín fjármál nema einn mánuð í senn, hvernig í óskupunum ætla íslensk fyrirtæki að fara að því?
Þetta er eintómt klúður og bull.
|
Leigan hækkað um 31.500 krónur á mánuði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.9.2007 | 08:56
Á að leyfa reykingar á veitingarhúsum?
Ég græði lítið á því að skrifa um hvort mér finnst að eigi að leyfa reykingar á veitingarhúsum. Lögin eru kominn í gegn og það verður ekki aftur snúið... Aldrei.
Sif Friðleifsdóttir ýtti frumvarpi um reykingarbann svo fljótandi áfram að ég held að hún hafi ekki staðið í mörgu öðru það kjörtímabilið. Þetta var hennar ósk og hennar frumvarp og hún fékk þetta í gegn, ekkert öðruvísi. Get einmitt ímyndað mér það að langtímaplan hennar á Alþingi sé að koma með frumvarp til að banna sölu tóbaks á landinu og ég spái því að eftir 10-15 ár verði Ísland orðið tóbakslaust land.
Forvarnir gegn reykingum hafa tekist rosalega vel. Prósentan af fólki sem reykir í landinu lækkar á hverjum degi og það eru fleiri að byrja á því að hætta heldur en að byrja á því að byrja, sem er náttúrulega æðislegt! Heilbrigt og gott fyrir samfélagið. En fólk verður samt að virða það að þetta er hvers manns kostur þegar hann kominn yfir 18 ára aldur. Það er ekki bannað að reykja. Fólk má reykja úti á stétt og í heimahúsi, þetta er þeirra val og skoðun þeirra sem eru á móti þessu skiptir þá litlu máli. Allaveganna hugsa þeir ekki um það þegar þeir fara út af barnum í febrúar til að reykja.... þá hugsa þeir um Sif.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 09:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.8.2007 | 14:24
Linkin Park
Til að hlusta á niðurstöðu þessara blöndunnar smellið hér
Linkin Park formúlann.
Hefðbundna uppbygging Linkin Park laga lítur svona út:
- Lágvær inngangskafli: Hvert lag byrjar yfirleitt á rólegum 8 takta inngangskafla.
- Hljóðfærasparkið: Allt bandið kemur inn saman eftir lágværa innganginn og spila venjulega 4-8 takta með kraftmiklum þungum gítartónum eða analog hljóðgervlum.
- Hljótt vers: Lagið róast niður á ný með versi eða tveim til að byggja upp fyrir atkvæðamiklu viðlagi.
- Þungt viðlag: Venjulega sami hljómagangur og er kynntur til leiks í Hljóðfærasparkinu" þar sem Chester hinn söngvarinn öskrar sem hæst dramatískan og illa saminn viðlagatexta.
Hérna sjáið þið hvernig graphið lítur út. Hver mynd sýnir kraft hljóðsins í ákveðnu lagi af fyrstu 90 sekúndur af ákveðnu Linkin Park lagið. Athugið að ég hef ekkert breytt graphinu, þetta er beint út fyrstu 90 sekúndurnar af 6 Linkin Park smellum. Linkur af lögunum sýnir Youtube link af myndböndum fyrir hvert lag en einnig ef þið setjið músina yfir myndina getið þið séð litauppbygginguna við formúluna hérna fyrir ofan.

Hetja dagsins: Hljómsveitameðlimir Linkin Park fyrir að nenna að stimpla niður svona formúlu fyrir hvert einasta lag.
Lag dagsins; Selfoss er með Sníglabandinu
Slóð dagsins; http://www.esnailer.com
Tónlist | Breytt s.d. kl. 14:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.7.2007 | 20:34
Þetta sýnir það...
... að ekki einu sinni Eiður Smári Guðjohnsen, færasti og virtasti knattspyrnumaður íslensku sögunnar getur labbað um miðborg Reykjavíkur án þess að hann sé barinn. Það eru allir í hættu í miðbænum. ... og svo vill fólk lækka áfengisverð.. það hlýtur að vera skynsamlegt!
En hvor mundi vinna í slag.. Eiður eða Ronaldinho?
Mundi persónulega kjósa íslenska þrjósku fram yfir ljótar tennur og sambahæfileika.
Hetja dagsins; Allaveganna ekki gaurinn sem sló Eið Smára
Lag dagsins; A trick of the tail með Genesis
Slóð dagsins; Brandara síða um trommara.
Hvað kallast gaurinn sem hangir alltaf með tónlistarmönnunum?
|
Veist að Eiði Smára |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
31.7.2007 | 15:34
Ísland - framarlegasta landið í blogginu!
Þrátt fyrir að ég hafi ekki gert neinar vísindalegar kannanir, eða frætt mig efnið á neinn hátt... þá held ég að prósentan yfir hvað margir blogga hér á Íslandi sé sú lang hæsta í heimi. Bæði er það auðvita vegna góðra þjónustu internetfyrirtækja og auðvita sú staðreynd að meðal heimili á allaveganna 2 tölvur.
Í mínum huga er stærsti fjölmiðill í heimi, sjónvarpið. Þá er ég að hugsa út frá öllum heiminum. Það eru til fleiri sjónvörp en tölvur í öllum heiminum.
En á Íslandi, er stærsti fjölmiðillinn bloggið.
Hverjum hafi dottið það í hug fyrir 20 árum?
Mér finnst það mjög eyðileggjandi.
Hetja dagsins; Höfundur Zeitgeist kvikmyndinnar.
Lag dagsins; Tarantula með Smashing Pumpkins
Slóðdagsins; zeitgeistmovie.com
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.7.2007 | 19:44
Emmy tilnefningar
| Outstanding Lead Actor In A Drama Series | |
| 24 • Fox • Imagine Television & 20th Century Fox Television in association with Realtime Productions Kiefer Sutherland as Jack Bauer | |
| Boston Legal • ABC • David E. Kelley Productions in association with Twentieth Century Fox Television James Spader as Alan Shore | |
| House • Fox • Heel and Toe Productions, Shore Z Productions, Bad Hat Harry Productions in association with NBC Universal Television Hugh Laurie as Dr. Gregory House | |
| Rescue Me • FX • Produced by Apostle, the Cloudland Company and DreamWorks Television in association with Sony Pictures Television Denis Leary as Tommy Gavin | |
| The Sopranos • HBO • Chase Films and Brad Grey Television in association with HBO Entertainment James Gandolfini as Tony Soprano | |
Af hverju í ósköpunum er Michael C. Hall ekki tilnefndur fyrir sinn frábæra og ótrúlega erfiða leik í drama þáttunum Dexter?
Þetta finnst mér sjokkerandi.
Hetja dagsins; Michael C. Hall að sjálfsögðu!
Lag dagsins; Dexter theme song
Slóð dagsins; http://www.wallpaperbase.com/wallpapers/music/pinkfloyd/pink_floyd_10.jpg
Bloggar | Breytt 25.7.2007 kl. 00:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.7.2007 | 18:23
Svona er rainshower
Í dag er rainshower veður. Það stendur alla veganna á Mozilla hjá mér.
Helgin góð. Var mikið heima hjá Vali og Birnu. Tókum svo rúnt á laugardaginn og ég tók minn fyrsta laugarvegsrúnt sem bílstjóri. Langar að segja að það hafi verið geðveikt en það er jafn ómerkilegt og að eyða tíma í að skrifa um það.
Er að fara í saltfiskveislu til systir mömmu og ömmu. Það verður spes. Vona að það verði nóg af rúgbrauði. Rúgbrauð er gott. Svo er það sveitin næstu helgi. Fæ frí á föstudag en neeeeeeei.. þarf samt að mæta kl 06:30 til að vera mættur út á flugvöll kl 07:00 til að bíða í hálftíma þangað til ég legg á stað með fluginu klukkan 07:30.
Og ég er ekki ennþá búinn að ákveða hvað ég ætla gera um versló. Ætli ég fari ekki bara á Höfn og fíla mig þar með 2leikmenn. Fyndið, Antik áttu að spila á föstudagsballinu en í staðinn fengu þeir rapphljómsveitina 2leikmenn. Rapp fyrir Antik.. ég bíð spenntur.
Bið að heilsa
Hetja dagsins; Mariska Hargitay - gellan úr Law&Order Special Victims unit. Án efa ein af kynþokkafyllstu kvenneikonum á fertugsaldrinum.
Lag dagsins; Buff - Núna mun ég vaka. Ef ég fengi að ráða þá væri þetta sumarsmellurinn í ár
Slóð dagsins; http://tv-links.co.uk/link.do/1/3472/5280/33036/50084 <- Þáttaröð sem heitir Seven ages of rock. Þessi þáttur kallast "Birth of Rock" og fjallar mikið um Jimi Hendrix. Þessi þáttur hafði rosaleg áhrif á mig.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.7.2007 | 18:44
Draumur rætist
Ég lét draum rætast í dag.
Draumur minn hefur lengi verið að fara heim til eitthvers sem er veikur með heita súpu. Helst kjúklinganúðla súpu. Hjartað mitt bráðnar alltaf þegar ég sé þannig atriði í kvikmyndum eða sjónvarpsþáttum.
Draumurinn rættist kl 18:12 í dag þegar ég fór með súpu heim til Birnu og Vals ásamt heitum brauðbollum og flatkökur með hangikjeti. Reyndar var það bara grænmetissúpa en ekki kjúklinganúðlasúpa en mér finnst þetta var ásættanlegt.
Í dag lét ég draum rætast... hvað gerðir þú?
bið að heilsa!
Hetja dagsins; Valur Z fyrir að veita mér innblástur til að byrja blogga á ný
Lag dagsins; Paperboat með Lights on the Highway - ferskt gott íslenskt rokk.
vefslóð dagsins; http://www.oddmusic.com/gallery/om02700.html <- háværasta hljóðfæri heims.
P.s er að pæla í að stofna hljómsveit. Bara ég og svona gamaldags skemmtari (hljómborð). Ég ætla láta hana heita "Wildzone - The one man incredible band!"
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.7.2007 | 04:18
Dúndurfréttir og "Reykningar"
Fór á Dúndurfréttir með Val frænda á GaukpåStöng á Miðvikudagskvöldið. Hörku stemming, stappað af fólki og ágætis ölvun í gangi (þrátt fyrir að ég og Valur tókum ekki þátt í því). Mjög gaman að sjá þá í svona bar stemmingu og ég varð pínu skotinn af Gauknum. Skemmtilegur tónleikasalur og svona lúmskt gott hljóð þarna inni.
Hápunktar kvöldsins; Child in Time, July Morning, Black dog, Young Lust og Easy Livin'!
Lápunktar kvöldsins; Wish you were here & Comfortably numb.
Uriah Heep lögin voru að takast mjög vel hjá þeim. Easy Livin', The Wizard og July Morning voru rosalega flott. Deep Purple lögin voru einnig mögnuð. Into The Fire, Child In time og Soldier of Fortune voru alveg glæsileg. Zepplin var að gera sig líka. Black Dog og Communication Breakdown voru mjög góð, ásamt Good times Bad times þar sem að bassaleikur var til fyrirmyndar! Pink Floyd lögin voru líka góð á sinn hátt. Öll svoldið hröð og ópersónuleg nema Young Lust sem stóð upp sem sigurvegari kvöldsins í mínum augum þar sem Matta papa tókst afar vel að þenja. Comfortably Numb var lokalagið þeirra sem var bara ekki að heppnast fannst mér. Það var tómlegt, ekki mikið um tilfinningu, of hratt og frekar sloppy raddanir í viðlagi. Það sem hélt laginu uppi var gítarleikur Einars en hann fór á kostum í báðum sólóum. Svipuð vandamál voru með Wish you were here. En overall mjög góðir og skemmtilegir tónleikar.
En í annað. Til þess að lifa af næstu 11 daga, má ég eyða 207 kr á dag. Og þar sem ég þarf að taka stætó í vinnuna og tilbaka kostar það 200 kr daglega. Sem skilur eftir 7 kr í mat/sígarettur/annað. Verður spennandi. Ég á einn sígarettu pakka eftir og ég komst að því í dag að ef ég reyki hálfa sígarettu á dag þá endist hann mér í 11 daga. Einnig komst ég að því að ristuð samloka (sem inniheldur bónusbrauð, hunangsskinku og ostsneið) kostar einungis 65 kr.
Fór í Tónabúðina í dag og keypti Gítar! Ekki reyndar hand
a mér en fyrir hann Vilhjálm Lú frænda minn. Hann bað mig um að tékka á gíturum fyrir sig og fyrir valinu var Washburn "Telecaster look". Ódýr og einfaldur gítar og einstaklega þægilegur í blús. Kauði fær gítarinn á morgun og ég er farinn að hlakka til að fá að heyra viðbrögð, en hérna er mynd fyrir þig Villi af dýrinu ef þú getur engan veginn beðið. (ATH þetta er sniðið á gítarnum ekki akkurat þessi guitar týpa sem hann Villi mun spila á) Gaman að segja frá því að ég keypti hann af frænda mínum úr Svalfaðardalnum.
Kveð í bili úr rigningu í Reykjavík.
Hetja dagsins; Pétur Jesú Guðmundsson fyrir að geta sungið svona ótrúlega hátt uppi... sitjandi!
Lag dagsins; Easy Livin' með Uriah Heep
Slóð dagsins; http://www.archive.org/web/web.php
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.3.2007 | 20:12
Framsóknarógeð
Það er enginn helvítis tilviljun að þau í Skinney láti okkur vera í grænum sloppum. Helvítis hægri sinna vesalingar.
Já ég er byrjaður að starfa fyrir Mafíu Hornafjarðar. Nú eyði ég dögunum mínum að salta fisk, hlusta á tónlist og reykja 4 sígarettur á 15 mín. Ég fíla það í botn, en það besta er að fá útborgað á föstudögum. Ég hef ekki vitað um svona mikið magn af peningum síðan ég rændi Jóhann Helga hérna um árið.
Nóg að gera. Páskafrí að koma..sem verður ekkert frí reyndar fyrir mig.. Vinna alla páskanna frá 6 til 19 nema föstudaginn langa.. sá föstudagur verður stuttur enda ætla ég að vera svo þunnur að lakið mitt verður blautt.
Æði Æði Æði.. það var platað mig til að keppa á söngvakeppni framhaldskólanna. Var að pæla í að taka "Druslan Anna", lag sem Gleðisveitin Partý gerði vinsælt hérna fyrir jól (Lag; boten anna) en ég hætti við vegna þess að Buff neituðu að spila þetta lag. Þannig ég ákvað að taka frábært lag að nafni "Dagný" eftir Sigfús Halldórsson sem ég lærði á harmonikku þegar ég var 9 ára. Rosalega flott lag. Ætla að spila á píanó og syngja og láta Buff spila undir einnig með mér. Og það er alveg bókað mál að allar stelpur í salnum sem heita Dagný eiga eftir að vera á eftir mér þetta Laugardagskvöldið á Akureyri.
Hin kæra vinkona mín Helga Gísladóttir er að koma um páskana og verður til skiptis upp í sveit og hér á Höfn. Hlakka mikið til að sjá hana, enda orðið langt síðan síðast.
Ég hringdi í 112 í gær. Atla Már tókst að detta á staur og fara í hring og lenda með hausinn oná málmofni og næstum brjóta á sér hendina og kinnbeinið. Tók sjúkrabíl 9 mín að koma og ef hann hafði lent með hausinn oná ofninu í staðinn fyrir kinnbeinið þá hafði farið mjög illa, tala nú ekki um ef sjukrabillinn asnaðist til að vera svona lengi. Ég hafði getað hlaupið heim til þeirra..sagt þeim að koma.. og hlaupið til baka á þessum tíma. Asnalegt kerfi. En það besta var samt að ég og Atli þurftum að borga 1700 kr fyrir að hringja sjúkrabílinn út. Hurra fyrir heilbrigðis kerfi íslendinga! Nei ég meina ef að heimilislaus maður sem á enga ættingja lendir fyrir bíl, og eitthver random gaur út á götu hringir í sjukrabil, sjukrabill kemur, nær í heimilislausa gaurinn, fer með hann út á spítala, hann liggur dauðvona á bekknum rétt með meðvitund.. kemur annar sjúkrabílstjórinn "uu..heyrðu,.. ertu nokkuð með pening á þér?" Heimilslausinn gaurinn deyr á þeirri sekúndu og það endar með að random gaurinn sem hringdi í 112 þarf að borga þetta. Húrra Húrra Húrra.
Þrykkjurokk á morgun. Antik að spila ásamt fleirum. Við ætlum að taka 3 ný lög, öll á ensku, öll nýsamin og fín.. reyndar ekki nógu vel æfð, en kemur vonandi vel út. Frekar svona progressiv stíll á þeim lögum, verður gaman að fá að vita skoðanir almennings eftir frumfluttning þeirra.
Hrafn farinn til the jú ess of ei. Væri alveg til í að vera eitthverstaðar á leiðinni með flugi til rassgats núna... en þá mundi ég auðvita missa af vinnu..sem væri ekki nógu gott.
Síðasta helgi var fín. Maður fékk sér aðeins í tánna,.. reyndar ekki svona bókstaflega eins og Elva Björk og Svava sem datt í hug að setja ópal á milli tánna. Byrjuð heima ég, Elva, Svava, Sindri og Elva Dröfn. Mjög gaman, kiktum svo á Valda en ég fór frekar snemma heim enda búinn að vinna frá 6 um morguninn til 7. Maður getur s.s kvatt allt skemmtanalíf bless, það er samt fínt.. þá sparar maður kannski pening á áfengi (en eyðir meira í geðlyf).
En já.. ég hvet alla til að koma á Akureyri á söngkeppni framhaldskólanna! Þar verður hljómsveitin Buff með ball eftir keppnina og það verður geeeeeeeeeegt stuð. Ég verð upp á sviði í tígresdýragallanum hennar Elvu Bjarkar og með hárnet úr Skinney. Hver vill missa af svoleiðis óskupum?!#
Þetta blogg var styrkt af Skinney Þinganes.
Lag dagsins; Since I've been loving you með Zep Led
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Eldri færslur
Tenglar
Ég á netinu
Ég á netinu!
- Gömlu myndirnar!
- Gamla Bloggið!
- 123.is! Myndaalbúmið mitt
- YouTube!
- MSN!
- Gmail!
- Myspace!
Bloggvinir
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.2.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 7514
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar








jodis